Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum

Fyrsti aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum (SKVÍS) var haldinn þann 2. júní 2016, kl. 17-19 í Skriðu í  Stakkahlíð í húsakynnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Fundarstjóri var Jóhanna Einarsdóttir forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

Dagskrá var svohljóðandi:
17:00 – Setning.
17:05 – Hvatningarorð frá frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
17:10 – Örerindi vísindakvenna: – Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, Heiða María Sigurðardóttir lektor í sálfræði við Háskóla Íslands og Ása Brynjólfsdóttir rannsókna- og þróunarstjóri Bláa lónsins.
17:30 – Stefna félagsins: Tillögur stefnumótunardags.
17:40 – Aðalfundarstörf:
Skýrsla bráðabirgðastjórnar
Yfirlit reikninga.
Kosning um lög.
Ákvörðun um félagsgjald.
Kosning formanns og stjórnar.
Kosning skoðunarkvenna reikninga.
Önnur mál.
18:30 – Léttar veitingar.

Húsfyllir var og frábær stemmning  á fundinum.

Stefnumótunardagur

Bráðabirgðastjórn Samtaka kvenna í vísindum bauð konum að taka þátt í stefnumótunardegi Samtakanna þann 30. apríl kl. 9 – 13 að Skúlagötu 4 í Reykjavík. Tilgangur stefnumótunardagsins var að gefa breiðum hópi kvenna tækifæri til að skapa stefnu hinna nýstofnuðu samtaka. Þátttakendum á fundinum var skipt í umræðuhópa og fékk hver hópur ákveðið viðfangsefni til umræðu. Meðal annars var fjallað um markmið félagsins, sýnileika vísindakvenna, fyrirmyndir, fræðslu og tengslamyndun. Stjórn félagsins mun nota niðurstöður stefnumótunardagsins til að móta stefnu félagsins, skrifa lög þess og undirbúa starfsemina. Stefna og lög félagsins verða kynnt og lögð undir atkvæði félagskvenna á fyrsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður 2. júní 2016.