Author: Unnur Karlsdóttir
Námskeið um hrútskýringar og menndurtekningar
Hrútskýringanámskeið fyrir félagskonur SKVÍS
Þann 24. febrúar næstkomandi mun SKVÍS standa fyrir hrútskýringa- og menndurtekninganámskeiði fyrir félagskonur. Námskeiðið er skemmtileg blanda af fyrirlestrum og umræðum. Við byrjum á að fræðast um hvað hrútskýringar og menndurtekningar eru og hvernig við getum brugðist við þeim. Við nýtum svo visku fjöldans í minni hópum til þess að finna rétt viðbrögð við raunverulegum dæmum af því þegar konur hafa verið hrútskýrðar eða menndurteknar. Þátttakendur eru beðnir um að koma með dæmi úr sínum reynslubanka til að nýta í hópavinnunni. Að námskeiði loknu bregðum við okkur á barinn og spjöllum.
Hvar: Hótel Nordica, salur G.
Hvenær: 24.febrúar, frá klukkan 15 til 18.
Dagskrá:
15.00 Velkomnar – Stjórn SKVÍS.
15.05 – Hvað eru hrútskýringar og menndurtekningar? – Auður Magnúsdóttir og Anna Heiða Ólafsdóttir, formaður og varaformaður SKVÍS.
15.20 – Hvernig notum við jákvæð samskipti til að bregðast við hrútskýringum? – Jóhanna Ella Jónsdóttir, mannauðsstjóri hjá HÍ.
15.45 – “Hefurðu engan húmor kona?”- Hanna Björg Vilhjálmsdóttir – kynjafræðingur og kennari við Borgarholtsskóla.
16.10 – Hlé -drykki hægt að kaupa á barnum, boðið upp á kaffi og með því.
16.40 – Viska fjöldans: Raunveruleg dæmi um hrútskýringar og menndurtekningar rædd í hópum og hópurinn kemur með tillögur að viðbrögðum. Umsjón: Helga Bragadóttir.
17.10 – Viska fjöldans: niðurstöður hópavinnu kynntar. Umsjón: Helga Bragadóttir.
17.40 – Samantekt – Hvað höfum við lært? Ábendingar til félagsins?
17.50 Förum á barinn og spjöllum.
Vinsamlega skráið ykkur hér. Greiða þarf skráningargjald 1500 kr. á reikning xx við skráningu til þess að trygga sér sæti á námskeiðinu. Setjið nafnið ykkar í skýringu. Ath! takmarkaður fjöldi (alls 30 sæti á námskeiðinu).