Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum í Norræna húsinu 24. maí 2018

Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Kynning ársskýrslu og ársreikninga.
Samþykkt ársreikninga.
Kosning stjórnar, formanns og skoðunarmanna reikninga.
Ávarp Auðar Önnu Magnúsdóttur fráfarandi formanns.
 
Erindi:
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands: „Jafnrétti kynja í akademíunni.“
 
Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun: „Áskoranir í vinnu með gerendum í kynferðisbrotamálum.“
 
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, dósent og sviðsstjóri sálfræðisviðs Háskólans í Reykjavík og Rannveig S. Sigurvinsdóttir, aðjúnkt við sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík: “Konur á Íslandi segja frá kynferðisofbeldi á samfélagsmiðlum.”
 
Aðalfundargestum gefst að lokinni formlegri dagskrá tími til að blanda geði og drykkur verður í boði SKVÍS.
Félagskonur hvattar til að mæta á aðalfund og spennandi erindi.
Staður og stund: Norræna húsið, 24. maí kl. 16.00-18.00.

Morgunverðarfundur SKVÍS 7. des. 2017

Staður og stund: Fimmtudaginn 7.des í húsnæði Landbúnaðarháskólans að Keldnaholti klukkan 8:30.

Spennandi fyrirlestur framundan: Takið fimmtudagsmorgunin 7. des. frá: “Hekla Arnardóttir mun segja frá Crowberry Capital og um leið fjalla um hvaða leiðir eru færar í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi til að fylgja slíkum hugmyndum úr hlaði.
Crowberry Capital er sjóður sem fjárfestir í ungum tækni- og þekkingarfyrirtækjum með alþjóðlegan metnað og mikla vaxtamöguleika. Mörg fyrirtæki sem hafa náð miklum árangri á heimsvísu byggja vörur sínar á vísindalegum grunni og ge…ta því náð forskoti gagnvart samkeppni. Fyrir þá sem starfa við rannsóknir og þróun er mikilvægt að vera vakandi yfir því hvort að tækifæri eru til staðar á að byggja upp alþjóðlegt tæknifyrirtæki úr þeim hugmyndum sem upp koma.
Hekla, lærði vélaverkfræði við HÍ, hóf síðan störf hjá Össur þar sem hún starfaði fyrst í þróunardeild en fluttist síðan til Shanghai þar sem hún vann í Sölu- og markaðsmálum. Eftir 10 ár hjá Össur lá leiðin til Nýsköpunarsjóðs þar Hekla starfaði sem fjárfestingastjóri og hefur hún tekið þátt í stjórnum ýmissa sprotafyrirtækja fyrir hönd sjóðsins. Í sumar stofnaði Hekla ásamt samstarfskonum sínum Helgu Valfells og Jennýju Ruth Hrafnsdóttur sjóðinn Crowberry Capital.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar meðan á fyrirlestrinum stendur.