Tag: samtök
Morgunverðarfundur SKVÍS
“Lífið er eins og konfektkassi …. eða saga líffræðings á tímum tæknibreytinga.” Morgunverðarfundur haldinn í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar kl. 8:30-10:00
Sigríður Valgeirsdóttir mun segja frá starfi sínu innan líftæknigeirans á síðustu 20 árum eða svo, með hliðsjón af þeim miklu breytingum í tækni – og aðferðafræði sem hafa átt sér stað á þessu sviði á tímabilinu.
Sigríður nam líffræði við HÍ og lauk doktorsnámi í sameinda – og frumulíffræði við Uppsalaháskóla í Svíþjóð árið 1998. Að loknu doktorsnámi starfaði hún hjá Krabbameinsfélaginu og líftæknifyrirtækinu UVS en á árunum 2002 til 2013 stýrði hún líftæknifyrirtækinu Nimblegen á Íslandi. Þaðan lá leiðin til Bayern í Þýskalandi þar sem hún bjó og starfaði í fjögur ár sem stjórnandi í líftækni – og lyfjaframleiðsludeild Roche. Um mitt síðasta ár fluttist hún til baka til Íslands og starfar nú sem verkefnastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Auk líftækninnar hefur Sigríður tekið þátt í fjölmörgum samstarfsverkefnum innan rannsóknageirans hér heima.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar meðan á fyrirlestrinum stendur.