Heimasíðan opnuð og tengslin rædd

Heimasíða SKVÍS verður opnuð með pompi og prakt á efri hæðinni á Sólon 16. febrúar kl. 20. Arna Hrund Arnardóttir eigandi Hrund klínísk ráðgjöf ehf. ætlar síðan að gefa okkur nokkur vel valin ráð, tips and tricks, varðandi tengslamyndun og á eftir getum við æft okkur á hvorri annari með glas í hönd ef vill. Bjór/vínglas verður á 800 á barnum. Komum og fögnum síðunni og notum trikkin sem Arna kennir okkur á hverja aðra 🙂

The webpage of SKVÍS will be officially launched on feb 16th at the 2nd floor of Sólon (bankastræti 7a). Arna Hrund Arnardottir founder of Hrund klínísk ráðgjöf ehf. will then provide some tricks and tips on networking, which we then can use on each other. Beer/glass of wine for 800 ISK. Let’s all be there and celebrate and use Arna’s tips and tricks on each other

Stofnfundur félags kvenna í vísindum

Stofnfundur Samtaka kvenna í vísindum fór fram þann 11. febrúar 2016 kl. 17 í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8.

Dagskrá:
17.00 Kosning fundarstjóra
17.05 Konur í vísindum, er þörf á félagi? – Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði
17.20 Reynsla Félags kvenna í atvinnulífinu FKA af samtökunum – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður FKA
17.30 Stofnun félagsins Konur í tónlist Kítón – Védís Hervör Árnadóttir formaður Kítón og Lára Rúnarsdóttir varaformaður Kítón
17.40 Markmið félagsins – umræður
18.00 Kosning bráðabirgðastjórnar
18.10 Fyrirhugaður aðalfundur

Félagið er hugsað sem vettvangur fyrir konur í vísindum til að hittast, mynda og efla tengsl sín á milli. Þá er sérstaklega verið að horfa til þess að félagið geti stuðlað að því að konur í vísindum myndi sterk og varanleg stuðnings- og tengslanet en skortur á þeim er talin vera ein af orsökum kynjahalla í vísindum. Allar konur sem stunda rannsóknir á öllum fræðasviðum eða koma að vísindavinnu í einhverri mynd eru velkomnar í félagið, hvort sem þær vinna innan veggja háskólanna, í rannsóknastofnunum, akademíum eða úti í fyrirtækjum.

Vel var mætt á fundinn og greinilegur áhugi á stofnun samtaka vísindakvenna.