Í tilefni af því að vísindakonur hafa nú gengið til liðs við Me too bylgjuna þar sem þúsundir kvenna út um allan heim í ýmsum starfgreinum stíga fram og segja sögu af kynferðislegri áreitni eða kynferðisofbeldi eða valdníðslu í ýmsu formi í skugga þess valds sem karlar hafa haft á þeim vettvangi sem þær hafa starfað. Fréttakona Ríkisútvarpsins Sunna Valgerðardóttir tók saman frétt um framtak vísindakvenna og við leyfum okkur að birta hana hér orðrétt:
Category: frettir
Af aðalfundi 2017
Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum 30. maí klukkan 17.00-18.40. – Staður: Háskólinn í Reykjavík, stofa M104.
Auður Magnúsdóttir formaður samtakanna setti fundinn klukkan 17:03, bauð fundargesti velkomna og kynnti ráðherra.
Ávarp jafnréttismálaráðherra
Þorsteinn Víglundsson, jafnréttismálaráðherra flutti ávarp og fjallaði um stöðu jafnréttismála á Íslandi í alþjóðlegu samhengi. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á mikilvægi þess að setja fram kerfisbundnar aðgerðir í þágu jafnréttis, t.d. á borð við launajafnrétti kynjanna, til að árangur náist, enda verði ekki jafnrétti sjálfkrafa eins og reynslan sýnir og ótal rannsóknir.
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Auður Magnúsdóttir var kjörin fundarstjóri og Bjargey Anna Guðbrandsdóttir var kjörin fundarritari.
Örerindi
Vísindakonur héldu örerindi frá kl. 17:15
- Linda Bára Lýðsdóttir sálfræðingur og sviðsstjóri hjá VIRK flutti erindið: Geðheilsa kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð. Í því fjallaði hún um rannsóknir og þjónustu við geðheilsu kvenna bæði á meðgöngu og eftir barnsburð og mikilvægi breiðrar nálgunar í rannsóknum og greiningu á vanlíðan kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu.
- Silja Bára Ómarsdótitr aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands flutti erindið: Að taka mark á tilviljunum. Í því fjallaði hún um reynslu sína og þátt tilviljana í lífi hennar sem stúdent, fræðimaður og vísindakona á sviði alþjóðastjórnmála.
- Sóley Morteins, þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar flutti erindið: Mannfræðingurinn sem fór af leið: Saga af mannfræðingi sem varð þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar. Í því fjallaði hún um eigin reynslu og störf í rannsóknum.
- Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík flutti erindið: Tilraunir á kynjafordómum. Í því fjallað hún um rannsóknir með áherslu á “unconscious bias”, þ.e. ómeðvitaða fordóma/ómeðvituð skekkja/hugsanaskekkja.
Aðalfundarstörf hófust kl. 18.12
Kynning ársskýrslu og ársreikninga
Anna Heiða Ólafsdóttir varaformaður kynnti ársskýrslu samtakanna og sagði frá starfsemi fyrsta starfsárs.
Auður Magnúsdóttir formaður kynnti ársreikninga samtakanna í fjarveru gjaldkera.
Skoðunarmenn reikninga, þær Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir og Arna G. Antonsdóttir höfðu samþykkt ársreikninga og undirritað yfirlýsingu.
Ársreikningur borinn upp til samþykktar og samþykktur með handauppréttingu.
Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
Eftifarandi voru í framboði til stjórnar:
Til formanns:
- Auður Magnúsdóttir
Meðstjórnendur:
- Anna Heiða Ólafsdóttir
- Ásrún Matthíasdóttir
- Bryndís G. Róbertsdóttir
- Unnur Birna Karlsdóttir
- Freydís Vigfúsdóttir
- Sigrún María Kristinsdóttir
- Sigrún Sigurðardóttir
- Vigdís Stefánsdóttir
Allar stjórnarkonur voru kjörnar samhljóma
Svala Jónsdóttir var jafnframt kjörin fulltrúi ungu kynslóðarinnar.
Eftirfarandi voru í framboði til skoðunarmanna reikninga og voru þær kjörnar samhljóða:
Arna G. Antonsdóttir
Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir
Þórey Rúnarsdóttir
Fundi slitið kl. 18:30.