” Vísindakonur deila sögum af áreitni og ofbeldi”

Í tilefni af því að vísindakonur hafa nú gengið til liðs við Me too bylgjuna þar sem þúsundir kvenna út um allan heim í ýmsum starfgreinum stíga fram og segja sögu af kynferðislegri áreitni eða kynferðisofbeldi eða valdníðslu í ýmsu formi í skugga þess valds sem karlar hafa haft á þeim vettvangi sem þær hafa starfað. Fréttakona Ríkisútvarpsins Sunna Valgerðardóttir tók saman frétt um framtak vísindakvenna og við leyfum okkur að birta hana hér orðrétt:

“Konur í vísindum eru nú með undirskriftarsöfnun í gangi þar sem konur í vísindageiranum geta skrifað undir og deilt reynslusögum af áreiti og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir innan stéttarinnar undir formerkjum #metoo. Nú þegar hafa konur í stjórnmálum, listum og fleiri stéttum stofnað hópa þar sem þær deila sögum sínum.

Senda frá sér nafnlaust skjal

Samtök kvenna í vísindum (SKVÍS) deildu tenglinum um söfnunina á Facebook-síðu hópsins í morgun, þó að samtökin sem slík standi ekki fyrir átakinu heldur konur í vísindum almennt. Í póstinum segir að kynferðisofbeldi og áreitni eigi sér stað innan vísindasamfélagsins rétt eins og annars staðar í samfélaginu. Í skjalinu verður frásögnum kvenna safnað saman og þær birtar nafnlaust. Stofnaður hefur verið lokaður hópur fyrir konur innan vísindasamfélagsins þar sem þær geta deilt sögum sínum, eins og hefur verið gert meðal stjórnmálakvenna, listakvenna og fjölmiðlakvenna.

„Vísindasamfélagið er engin undantekning”

Auður Anna Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur og formaður Samtaka kvenna í vísindum, undirstrikar að vísindasamfélagið sé eins og öll önnur samfélög og kynferðisleg áreitni, áreiti og ofbeldi viðgangist þar eins og annars staðar.

„Þetta er samfélag með mjög skýran valdastrúktur þar sem konur eru oft undir, kynferðsleg áreitni og ofbeldi er ein birtingarmynd þess sem við búum við,” segir Auður.

Söfnunin verður með svipuðu sniði og hefur verið gert áður og á næstu dögum senda vísindakonur frá sér nafnlaust skjal þar sem frásögnum kvenna verður deilt.  „Vísindasamfélagið er engin undantekning þarna,” segir hún.

Farið er fram á að allir karlar taki ábyrgð, að allir vinnustaðir taki af festu á málinu, setji sér forvarnaráætlanir og viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.”

Heimild: http://ruv.is/frett/visindakonur-deila-sogum-af-areitni-og-ofbeldi – Vísindakonur deila sögum af áreitni og ofbeldi | RÚV -28.11.2017 – 10:37.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *