Af aðalfundi 2017

Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum 30. maí klukkan 17.00-18.40. – Staður: Háskólinn í Reykjavík, stofa M104.

 

Auður Magnúsdóttir formaður samtakanna setti fundinn klukkan 17:03, bauð fundargesti velkomna og kynnti ráðherra.

 

Ávarp jafnréttismálaráðherra

Þorsteinn Víglundsson, jafnréttismálaráðherra flutti ávarp og fjallaði um stöðu jafnréttismála á Íslandi í alþjóðlegu samhengi. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á mikilvægi þess að setja fram kerfisbundnar aðgerðir í þágu jafnréttis, t.d. á borð við launajafnrétti kynjanna, til að árangur náist, enda verði ekki jafnrétti sjálfkrafa eins og reynslan sýnir og ótal rannsóknir.

 

Kosning fundarstjóra og fundarritara

Auður Magnúsdóttir var kjörin fundarstjóri og Bjargey Anna Guðbrandsdóttir var kjörin fundarritari.

 

Örerindi

Vísindakonur héldu örerindi frá kl. 17:15

  • Linda Bára Lýðsdóttir sálfræðingur og sviðsstjóri hjá VIRK flutti erindið: Geðheilsa kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð. Í því fjallaði hún um rannsóknir og þjónustu við geðheilsu kvenna bæði á meðgöngu og eftir barnsburð og mikilvægi breiðrar nálgunar í rannsóknum og greiningu á vanlíðan kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu.
  • Silja Bára Ómarsdótitr aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands flutti erindið: Að taka mark á tilviljunum. Í því fjallaði hún um reynslu sína og þátt tilviljana í lífi hennar sem stúdent, fræðimaður og vísindakona á sviði alþjóðastjórnmála.
  • Sóley Morteins, þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar flutti erindið: Mannfræðingurinn sem fór af leið: Saga af mannfræðingi sem varð þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar. Í því fjallaði hún um eigin reynslu og störf í rannsóknum.
  • Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík flutti erindið: Tilraunir á kynjafordómum. Í því fjallað hún um rannsóknir með áherslu á “unconscious bias”, þ.e. ómeðvitaða fordóma/ómeðvituð skekkja/hugsanaskekkja.

 

Aðalfundarstörf hófust kl. 18.12

Kynning ársskýrslu og ársreikninga

Anna Heiða Ólafsdóttir varaformaður kynnti ársskýrslu samtakanna og sagði frá starfsemi fyrsta starfsárs.

 

Auður Magnúsdóttir formaður kynnti ársreikninga samtakanna í fjarveru gjaldkera.

 

Skoðunarmenn reikninga, þær  Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir og Arna G. Antonsdóttir höfðu samþykkt ársreikninga og undirritað yfirlýsingu.

Ársreikningur borinn upp til samþykktar og samþykktur með handauppréttingu.

 

Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.

Eftifarandi voru í framboði til stjórnar:

Til formanns:

  • Auður Magnúsdóttir

Meðstjórnendur:

  • Anna Heiða Ólafsdóttir
  • Ásrún Matthíasdóttir
  • Bryndís G. Róbertsdóttir
  • Unnur Birna Karlsdóttir
  • Freydís Vigfúsdóttir
  • Sigrún María Kristinsdóttir
  • Sigrún Sigurðardóttir
  • Vigdís Stefánsdóttir

Allar stjórnarkonur voru kjörnar samhljóma

Svala Jónsdóttir var jafnframt kjörin fulltrúi ungu kynslóðarinnar.

Eftirfarandi voru í framboði til skoðunarmanna reikninga og voru þær kjörnar samhljóða:

Arna G. Antonsdóttir

Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir

Þórey Rúnarsdóttir

 

Fundi slitið kl. 18:30.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *