Hvar: í húsi Hafrannsóknastofnunar á Skúlagötu 4 (1. hæð), Reykjavík. Hvenær: þriðjudaginn 11. april, 2017, klukkan 08:30 – 10:00. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur fyrir SKVIS meðlimi og 1000 kr aðgangur fyrir aðra. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti. Fyrirlesturinn verður á ensku.
Mary Frances Davidson, sérfræðingur hjá Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, ætlar að segja okkur frá þátttöku íslendinga í alþjóðlegu þróunarstarfi í sjávarútvegi og hvernig Ísland getur hjálpað vanþróuðum löndum við að þróa sjálfbær samfélög. Eins og Mary segir: “Það er framleiddur nægur matur fyrir allt mannkynið en samt fer um 1 milljarður manna svangur að sofa á hverju kvöldi. Eftir því sem mannkyninu fjölgar þá verður erfiðara að útrýma fátækt og hungri án þess að ganga á náttúrulegar auðlindir jarðarinnar. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er ein helsta áskorun mannkyns í dag. Sjávarútvegur er mikilvægur hlekkur í fæðuöryggi heimsins þar sem um 10 % jarðarbúa byggja afkomu sína á fiskveiðum. Þar af er um 75 % af fiskafla og 90 % af fiskeldisfiski framleitt í vanþróuðum löndum. ”

Mary Frances Davidson
