Fræðslumorgunn – Þín eigin framleiðni

Það er komið að fyrsta fræðslumorgninum hjá Samtökum Kvenna í Vísindum. Hún Helga Guðrún Óskarsdóttir ætlar að halda erindi um þína eigin framleiðni. Lesið áfram fyrir ítarlegar upplýsingar og skráningu:

First breakfast meeting of the Icelandic Association of Women in the sciences. Helga Guðrún Óskarsdóttir will educate us on personal productivity (in icelandic).

Skráning hér (registration):
https://goo.gl/forms/cPvymxlcwlEStDil2

Hvenær (when):
25.október kl 8:30 (25.october at 8:30)

Staðsetning (where):
Háskólinn í Reykjavík – Stofa M106
(University of Reykjavík)

Verð (prices):
Í boði fyrir félagskonur (hægt að skrá sig sem félagskonu hér: https://goo.gl/forms/iYUN5ONmf0VhLMXk2 )
en kostar 1.000 Kr fyrir aðra (hægt að koma með seðil, eða millifæra á: 301-26-9573, kt: 4707160100)
(Free for members others 1.000 Kr)

Hvað (what):
Fræðsluerindi + morgunsnarl
(Presentation and a breakfast snack)
Tilkynning. Fræðslufundur á vegum Samtaka kvenna í vísindum: Staður og stund – Háskólinn í Reykjavík, 25. okt, kl. 8.30-9.30.

Lýsing á erindi (description of presentation – will be in icelandic):
Hvaða þættir eru mikilvægir til að bæta þína eigin framleiðni?

Til eru þúsundir sjálfshjálparbóka sem halda því fram að þær séu með nýja lausn á því hvernig einstaklingurinn getur bætt eigin framleiðni og þannig gengið betur í vinnunni og orðið hamingjusamari.

Hvað eiga þessar bækur sameiginlegt? Er ekki líklegt að þær séu byggðar á sömu hugmyndum sem þykja mikilvægar til að bæta eigin framleiðni?

Helga Guðrún Óskarsdóttir skoðaði þetta í meistaraverkefni sínu þar sem hún las 40 vinsælustu sjálfshjálparbækurnar um eigin framleiðni á Amazon.com. Hún uppgötvaði að bækurnar fjalla allar um svipaðar hugmyndir sem hún flokkaði í 26 hugtök. Hún setti þessi hugtök upp í ramma eftir því hvernig þau vinna saman til að hjálpa fólki ná markmiðum í lífinu, auka skilvirkni og afköst. Í erindinu mun Helga Guðrún fjalla um þessi hugtök og hvernig einstaklingurinn notar þau til að bæta eigin framleiðni samkvæmt sjálfshjálparbókum.

Helga Guðrún er með meistaragráðu í hugbúnaðarverkfræði og B.Sc. í lífefnafræði frá Háskóla Íslands. Hún var að vinna sem þróunarstjóri og verkefnastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Handpoint en byrjaði í doktorsnámi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands 2016.

Kick-off

(See in English below)

Viðburður: Stund og staður: Í dag, 23. september 2016, kl. 19-22 í Blómasal  á Hótel Natura, fyrstu hæð, gengið til hægri frá inngangi og í gegnum veitingasalinn og inn til vinstri í salinn.

Nú er komið að því kæru konur! Við spörkum vetrinum í gang með hittingsmingli í blómasalnum á hótel Natura þann 23. september. Stemningin verður létt og óformleg og konur geta keypt sér á barnum ef þær vilja. Dagskráin verður ekki stíf til að gefa mikið rúm fyrir spjall og sprell. Hápunktur kvöldsins verður kynning og skráning í nýja vinnuhópa félagsins en konur geta gengið á milli og kynnt sér vinnuhópana og valið vandlega hvar þær vilja vera með. Eins og er verða þessir vinnuhópar í boði:

Greinaskrif –sýnileiki vísindakvenna út á við
Fjáröflun
Mentorship
Allskonar fræðsla fyrir vísindakonur
GamanSaman og Tenglsanet

Dagskrá kvöldsins
19.00 Húsið opnar
20.00 Kynning á nýrri stjórn samtakanna
20.10 Kynning á vetrardagskrá samtakanna fram að áramótum
20.20 Skráining í vinnuhópa félagsins
22.00 Rölt á næsta bar og fjörið heldur áfram

Vonumst til að sjá ykkur sem flestar ☺
Kær kveðja
Stjórnin

Hallo Ladies,

It is kick off time!

The Association of Women in the Sciences is launching the fall activity
schedule with a party. This is not a night of long speeches as there are
only two items on the agenda: 1) working groups of the Association will be
introduced and you have the opportunity to register for the group of your
chose, and 2) to have fun. We invite you to join us for a night of
engaging conversation with old and new friends.
The party is Friday September 23 at Hotel Natura (Nautholsvegur 52, 101
Reykjavik), and the fun begins at 19:00 and will last to 23:00, at least.
The bar is open (no free drinks – sorry).

The working groups are:
1) We are scientists too – perception of us in the public eye
2) Mentorship
3) Networking – the fun club
4) Professional development
5) Money Money Money – fundraising

The party schedule:
19:00 the party begins
20:00 introduction of the Board
20:10 introduction of working groups
20:20 registration for working groups
22:00 the party ends

We look forward to having fun with you at the kickoff party.
Cheers, the Board