Fyrsti aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum (SKVÍS) var haldinn þann 2. júní 2016, kl. 17-19 í Skriðu í Stakkahlíð í húsakynnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Fundarstjóri var Jóhanna Einarsdóttir forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Dagskrá var svohljóðandi:
17:00 – Setning.
17:05 – Hvatningarorð frá frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
17:10 – Örerindi vísindakvenna: – Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, Heiða María Sigurðardóttir lektor í sálfræði við Háskóla Íslands og Ása Brynjólfsdóttir rannsókna- og þróunarstjóri Bláa lónsins.
17:30 – Stefna félagsins: Tillögur stefnumótunardags.
17:40 – Aðalfundarstörf:
Skýrsla bráðabirgðastjórnar
Yfirlit reikninga.
Kosning um lög.
Ákvörðun um félagsgjald.
Kosning formanns og stjórnar.
Kosning skoðunarkvenna reikninga.
Önnur mál.
18:30 – Léttar veitingar.
Húsfyllir var og frábær stemmning á fundinum.