Kvöldhittingur SKVÍS – 2. nóvember á Geira smart

Næsti kvöldhittingur Félags kvenna í vísindum er fimmtudagskvöldið 2. nóvember næstkomandi.
Hittumst hressar í fimmtudagshitting á Geira smart. Blöndum geði, tengjumst og tengjum. Stjórnarkonur verða á svæðinu, merktar í bak og fyrir. Ekki vera feimnar, við munum tala við allar. Happy hour á barnum til kl. 18.

Staður og stund: Geiri smart – Restaurant, Hverfisgata 30, 101 Reykjavík, fimmtudag 2. nóv. n.k. kl. 17-19.

 

Morgunverðarfundur SKVÍS

Staður: Efla verkfræðistofa, Höfðabakka 9, 2. hæð.
Dr. Sigrún María Kristinsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur, mun fjalla um rannsóknir sínar á sjálfbærni og félagslegu jafnrétti innan þeirra marka sem jörðin setur okkur. Rannsóknirnar velta upp áleitnum spurningum í samskiptum manns og náttúru, m.a. um jafnrétti kynjanna, þátttökulýðræði og samfélagslega ábyrgð. Erindið nefnir Sigrún ,,Snertu steininn,” og vísar heitið til þátttökuhvetjandi aðferðar sem notuð var á vinnufundum (heimskaffihúsum) á Indlandi.
Allar félagskonur velkomnar. Veitingar í boði.