Haustfagnaður SKVÍS

Samtök kvenna í vísindum bjóða öllum vísindakonum að mæta, mingla og hlýða á vel valin erindi frá konum í faginu.

Staður og stund: Föstudagur 15. september kl. 19.30 – 22.30 – Í sal Norræna hússins.

Gyða Margrét Pétursdóttir dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands heldur erindið: “Fleiri konur en hvað svo? Ára kynjajafnréttis og óáran í vísindasamfélaginu”.

Einnig verða óformlegir umræðuhópar þar sem m.a. verður rætt um hrútskýringar, sýnileika kvenna og bætt tengslanet.

Tilboð á barnum !

 

Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum

Aðalfundur Samtaka kvenna í vísindum verður haldinn 30. maí klukkan 17.00-18.40.

Staður: Háskólinn í Reykjavík, stofa M104.
Dagskrá aðalfundar SKVÍS

17.00 Kosning fundarstjóra og fundarritara.
17.10 Ávarp jafnréttisráðherra.
17.25 Örerindi.
– Geðheilsa.is kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð – Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri hjá Virk.
– Að taka mark á tilviljunum – Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
– Mannfræðingurinn sem fór af leið: Saga af mannfræðingi sem varð þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar – Sóley Morteins, þróunarstjóri Hafrannsóknastofnunar.
– Tilraunir á kynjafordómum – Katrín Ólafsdóttir, lektor Háskólanum í Reykjavík.
17.55 Kynning ársskýrslu og ársreikninga.
18.15 Samþykkt ársreikninga.
18.20 Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
18.40 Fundi slitið.