Morgunverðarfundur SKVÍS

Staður: Efla verkfræðistofa, Höfðabakka 9, 2. hæð.
Dr. Sigrún María Kristinsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur, mun fjalla um rannsóknir sínar á sjálfbærni og félagslegu jafnrétti innan þeirra marka sem jörðin setur okkur. Rannsóknirnar velta upp áleitnum spurningum í samskiptum manns og náttúru, m.a. um jafnrétti kynjanna, þátttökulýðræði og samfélagslega ábyrgð. Erindið nefnir Sigrún ,,Snertu steininn,” og vísar heitið til þátttökuhvetjandi aðferðar sem notuð var á vinnufundum (heimskaffihúsum) á Indlandi.
Allar félagskonur velkomnar. Veitingar í boði.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *