Stefnumótunardagur

Bráðabirgðastjórn Samtaka kvenna í vísindum bauð konum að taka þátt í stefnumótunardegi Samtakanna þann 30. apríl kl. 9 – 13 að Skúlagötu 4 í Reykjavík. Tilgangur stefnumótunardagsins var að gefa breiðum hópi kvenna tækifæri til að skapa stefnu hinna nýstofnuðu samtaka. Þátttakendum á fundinum var skipt í umræðuhópa og fékk hver hópur ákveðið viðfangsefni til umræðu. Meðal annars var fjallað um markmið félagsins, sýnileika vísindakvenna, fyrirmyndir, fræðslu og tengslamyndun. Stjórn félagsins mun nota niðurstöður stefnumótunardagsins til að móta stefnu félagsins, skrifa lög þess og undirbúa starfsemina. Stefna og lög félagsins verða kynnt og lögð undir atkvæði félagskvenna á fyrsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður 2. júní 2016.

Stofnfundur félags kvenna í vísindum

Stofnfundur Samtaka kvenna í vísindum fór fram þann 11. febrúar 2016 kl. 17 í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8.

Dagskrá:
17.00 Kosning fundarstjóra
17.05 Konur í vísindum, er þörf á félagi? – Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði
17.20 Reynsla Félags kvenna í atvinnulífinu FKA af samtökunum – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður FKA
17.30 Stofnun félagsins Konur í tónlist Kítón – Védís Hervör Árnadóttir formaður Kítón og Lára Rúnarsdóttir varaformaður Kítón
17.40 Markmið félagsins – umræður
18.00 Kosning bráðabirgðastjórnar
18.10 Fyrirhugaður aðalfundur

Félagið er hugsað sem vettvangur fyrir konur í vísindum til að hittast, mynda og efla tengsl sín á milli. Þá er sérstaklega verið að horfa til þess að félagið geti stuðlað að því að konur í vísindum myndi sterk og varanleg stuðnings- og tengslanet en skortur á þeim er talin vera ein af orsökum kynjahalla í vísindum. Allar konur sem stunda rannsóknir á öllum fræðasviðum eða koma að vísindavinnu í einhverri mynd eru velkomnar í félagið, hvort sem þær vinna innan veggja háskólanna, í rannsóknastofnunum, akademíum eða úti í fyrirtækjum.

Vel var mætt á fundinn og greinilegur áhugi á stofnun samtaka vísindakvenna.