Stofnfundur Félags kvenna í vísindum fer fram þann 11. febrúar 2016 kl. 17 í Tjarnarsal Íslenskrar Erfðagreiningar, Sturlugötu 8.
Tjarnarsalur: Íslensk erfðagreining. Sturlugötu 8, 101 Reykjavík.
Dagskrá
17.00 Kosning fundarstjóra
17.05 Konur í vísindum, er þörf á félagi? – Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði
17.20 Reynsla Félags kvenna í atvinnulífinu FKA af samtökunum – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður FKA
17.30 Stofnun félagsins Konur í tónlist Kítón – Védís Hervör Árnadóttir formaður Kítón og Lára Rúnarsdóttir varaformaður Kítón
17.40 Markmið félagsins – umræður
18.00 Kosning bráðabirgðastjórnar
18.10 Fyrirhugaður aðalfundur
Félagið er hugsað sem vettvangur fyrir konur í vísindum til að hittast, mynda og efla tengsl sín á milli. Þá er sérstaklega verið að horfa til þess félagið geti stuðlað að því að konur í vísindum myndi sterk og varanleg stuðnings- og tengslanet en skortur á þeim er talin vera ein af orsökum kynjahalla í vísindum. Allar konur sem stunda rannsóknir á öllum fræðasviðum eða koma að vísindavinnu í einhverri mynd eru velkomnar, hvort sem þær vinna innan veggja háskólanna, í rannsóknastofnunum, akademíum eða úti í fyrirtækjum.