Þátttaka Íslendinga í alþjóðlegu þróunarstarfi í sjávarútvegi – Morgunverðarfundur

Hvar: í húsi Hafrannsóknastofnunar á Skúlagötu 4 (1. hæð), Reykjavík. Hvenær: þriðjudaginn 11. april, 2017, klukkan 08:30 – 10:00. Allir velkomnir.  Ókeypis aðgangur fyrir SKVIS meðlimi og 1000 kr aðgangur fyrir aðra. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti. Fyrirlesturinn verður á ensku.

Mary Frances Davidson, sérfræðingur hjá Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, ætlar að segja okkur frá þátttöku íslendinga í alþjóðlegu þróunarstarfi í sjávarútvegi og hvernig Ísland getur hjálpað vanþróuðum löndum við að þróa sjálfbær samfélög. Eins og Mary segir: “Það er framleiddur nægur matur fyrir allt mannkynið en samt fer um 1 milljarður manna svangur að sofa á hverju kvöldi. Eftir því sem mannkyninu fjölgar þá verður erfiðara að útrýma fátækt og hungri án þess að ganga á náttúrulegar auðlindir jarðarinnar. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er ein helsta áskorun mannkyns í dag. Sjávarútvegur er mikilvægur hlekkur  í fæðuöryggi heimsins þar sem um 10 % jarðarbúa byggja afkomu sína á fiskveiðum. Þar af er um 75 % af fiskafla og 90 % af fiskeldisfiski framleitt í vanþróuðum löndum. ”

 

Mary Frances Davidson

Vísindakonur eru líka frumkvöðlar

Næsti morgunverðarfundur SKVÍS verður haldinn fimmtudaginn 2. mars kl 8:30 – 10:00 í Náttúrufræðistofnun Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, Garðabæ

Dr. Ester Rut Unnsteinsdóttir er frumkvöðull og vísindakona. Hún ætlar að segja okkur söguna af því hvernig hún stofnaði og rak Refasetrið á Súðavík meðan hún var í doktorsnámi. Framsýni, viðskiptavit, sannfæringarkraftur, útsjónarsemi og tilviljanir eru hluti af vinnu frumkvöðuls. Þú ert velkomin að koma og hlusta á Ester segja okkur frá áskorunum sem fylgja því að vera frumkvöðull og vísindakona á Íslandi.

Allir velkomnir.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagskonur í Samtökum kvenna í vísindum og 1000 kr fyrir aðra.

Boðið upp á kaffi og meðlæti.

Mynd. Ester Rut Unnsteinsdóttir.