Haustfagnaður SKVÍS

Samtök kvenna í vísindum bjóða öllum vísindakonum að mæta, mingla og hlýða á vel valin erindi frá konum í faginu.

Staður og stund: Föstudagur 15. september kl. 19.30 – 22.30 – Í sal Norræna hússins.

Gyða Margrét Pétursdóttir dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands heldur erindið: “Fleiri konur en hvað svo? Ára kynjajafnréttis og óáran í vísindasamfélaginu”.

Einnig verða óformlegir umræðuhópar þar sem m.a. verður rætt um hrútskýringar, sýnileika kvenna og bætt tengslanet.

Tilboð á barnum !

 

Fyrsta ársskýrslan komin út

Ársskýrsla SKVÍS fyrir starfsárið júní 2016 til júní 2017 er komin út þar sem sjá má um fjölbreytt starf samtakanna á fyrsta starfsárinu. Athugið að til að opna skýrsluna í gegnum tengilinn þarf að opna þessa fréttatilkynningu sér ef hún er skoðuð í fréttayfirlitinu, þ.e. smella á fyrirsögn.

 

Skýrsluna má nálgast hér