Morgunverðarfundur með Meet in Reykjavík

Staður og stund; Radison Blu Hótel Saga, 18. nóv. 2016 klukkan 8.30-10.00

Á þessum morgunverðarfundi kynnti Meet in Reykjavík þau úrræði sem þau hafa til þess að aðstoða vísindakonur sem hafa áhuga á að fá alþjóðlegar ráðstefnur til landsins, til dæmis ef vísindakonur eru meðlimir í alþjóðlegum samtökum sem halda reglulega fundi/ráðstefnur. Meet in Reykjavík gera tilboð í ráðstefnuna í samkeppni við aðrar borgir og aðstoða þannig við fyrsta skrefið endurgjaldslaust. Meet in Reykjavík hefur það meginhlutverk að markaðssetja Reykjavík og Ísland sem áfangastað fyrir alþjóðlegar ráðstefnur, hvataferðir og viburði.
Að Meet in Reykjavík standa 44 fyrirtæki sem starfa innan ráðstefnu- og viðburðarmarkaðar eða sjá hag sinn í styrkingu þessarar tegundar ferðaþjónustunnar. Kjölfestufjárfestar eru Reykjarvíkurborg, Icelandair Group og Harpa. Meet in Reykjavík sér um að beina öllum viðskiptatækifærum sem verða til, í gegnum kynningar- og markaðsstarf sitt, til aðildarfélaga. Innan þess félagsskapar eru m.a. sérfræðingar sem sjá um skipulagningu og umsjón ráðstefna og viðburða á Íslandi.

Boðið var upp á létta morgunhressingu.

Fræðslumorgunn – Þín eigin framleiðni

Það er komið að fyrsta fræðslumorgninum hjá Samtökum Kvenna í Vísindum. Hún Helga Guðrún Óskarsdóttir ætlar að halda erindi um þína eigin framleiðni. Lesið áfram fyrir ítarlegar upplýsingar og skráningu:

First breakfast meeting of the Icelandic Association of Women in the sciences. Helga Guðrún Óskarsdóttir will educate us on personal productivity (in icelandic).

Skráning hér (registration):
https://goo.gl/forms/cPvymxlcwlEStDil2

Hvenær (when):
25.október kl 8:30 (25.october at 8:30)

Staðsetning (where):
Háskólinn í Reykjavík – Stofa M106
(University of Reykjavík)

Verð (prices):
Í boði fyrir félagskonur (hægt að skrá sig sem félagskonu hér: https://goo.gl/forms/iYUN5ONmf0VhLMXk2 )
en kostar 1.000 Kr fyrir aðra (hægt að koma með seðil, eða millifæra á: 301-26-9573, kt: 4707160100)
(Free for members others 1.000 Kr)

Hvað (what):
Fræðsluerindi + morgunsnarl
(Presentation and a breakfast snack)
Tilkynning. Fræðslufundur á vegum Samtaka kvenna í vísindum: Staður og stund – Háskólinn í Reykjavík, 25. okt, kl. 8.30-9.30.

Lýsing á erindi (description of presentation – will be in icelandic):
Hvaða þættir eru mikilvægir til að bæta þína eigin framleiðni?

Til eru þúsundir sjálfshjálparbóka sem halda því fram að þær séu með nýja lausn á því hvernig einstaklingurinn getur bætt eigin framleiðni og þannig gengið betur í vinnunni og orðið hamingjusamari.

Hvað eiga þessar bækur sameiginlegt? Er ekki líklegt að þær séu byggðar á sömu hugmyndum sem þykja mikilvægar til að bæta eigin framleiðni?

Helga Guðrún Óskarsdóttir skoðaði þetta í meistaraverkefni sínu þar sem hún las 40 vinsælustu sjálfshjálparbækurnar um eigin framleiðni á Amazon.com. Hún uppgötvaði að bækurnar fjalla allar um svipaðar hugmyndir sem hún flokkaði í 26 hugtök. Hún setti þessi hugtök upp í ramma eftir því hvernig þau vinna saman til að hjálpa fólki ná markmiðum í lífinu, auka skilvirkni og afköst. Í erindinu mun Helga Guðrún fjalla um þessi hugtök og hvernig einstaklingurinn notar þau til að bæta eigin framleiðni samkvæmt sjálfshjálparbókum.

Helga Guðrún er með meistaragráðu í hugbúnaðarverkfræði og B.Sc. í lífefnafræði frá Háskóla Íslands. Hún var að vinna sem þróunarstjóri og verkefnastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Handpoint en byrjaði í doktorsnámi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands 2016.