Fræðslumorgunn

Næskomandi miðvikudag 25. janúar mun Dr. Snjólaug Ólafsdóttir umhverfisverkfræðingur fjalla um hvernig umhverfismálin snerta okkur frá degi til dags og hvernig við bregðumst við umfjöllunum um umhverfismál í samfélaginu. Hvernig koma megi umhverfismálum að í nútímalífi án þess falla saman af álagi og hvernig hægt er að keyra jeppa en samt teljast umhverfissinnaður! Dr. Snjólaug Ólafsdóttir útskrifaðist með doktorspróf í umhverfisverkfræði frá Háskóla Íslands 2014. Snjólaug er stofnandi og eigandi ráðgjafafyrirtækisins Andrýmis ráðgjafar ehf. sem sérhæfir sig í bættri umhverfismenningu og aukinni umhverfisvitund innan fyrirtækja og stofnanna. Haldið í Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Árleyni 2-8.

Ókeypis fyrir meðlimi SKVÍS, 1000 kr. fyrir ekki-SKVÍS-ur. Boðið verður upp á létta morgunhressingu.

Vinsamlega skráið ykkur á viðburðinn hér:
https://goo.gl/forms/ukwy0W4w5HEyrttb2